PLAY PODCASTS
Unga Fólkið

Unga Fólkið

89 episodes — Page 2 of 2

Ep 39Þáttur 40, Thorunn Clausen

Thorunn Clausen, leikari og tónlistarkona, hefur svo sannarlega upplifað tímana tvenna. Hún er einstakur laga- og textahöfundur og hafa verk hennar komið víða við. Hún hefur einnig þurft að ganga í gegn um mikinn missi sem enginn ætti að þurfa að upplifa.

Jun 21, 202153 min

Ep 38Þáttur 39, Mögnuð saga Gunnars Kr

Í þættinum fáum við að heyra magnaða sögu Gunnars Kr sem lenti ungur í alvarlegu slysi og missti bæði sjón og aðra höndina. Gunnar var fæddur árið 1936 og lést árið 2013.

May 1, 202156 min

Ep 37Þáttur 38, Arnþrúður Karlsdóttir

Arnþrúður Karlsdóttir hefur ekki hikað við að fara ótroðar slóðir og rutt brautina á fjölmörgum sviðum fyrir konur. Hún var ein af fyrstu lögreglukonum landsins, var í fíkniefnalögreglunni og rannsakaði kynferðisbrotamál hjá rannsóknarlögreglu ríkisins. Mikil íþróttakona og var landsliðsmaður í kvennalandsliðinu í handbolta í áraraðir, háskólamenntaður blaða- og fréttamaður frá Noregi, sjónvarpsfréttamaður og ein af stofnendum Rásar 2. Arnþrúður hefur setið á Alþingi Íslendinga, er lögfræðimenntuð og síðustu tæpa tvo áratugina hefur hún verið eigandi og útvarpsstjóri Útvarps Sögu. Það hefur ekki alltaf verið logn í lífi Arnþrúðar Karlsdóttur. Arnþrúður Karlsdóttir " alltaf í hita leiksins"

Apr 26, 20212h 24m

Ep 36Þáttur 37, Fritz Már Jörgensson

Í þættinum minnumst við Guðjóns Elís Bragasonar, góðvinar Unga Fólksins, sem kvaddi okkur 19. mars síðastliðinn. Séra Fritz Már Jörgensson ræðir við okkur um sorgina, hvernig sorgin getur brotist fram á marga vegu og hvernig fólk lærir að lifa með missi. Fritz hefur starfað sem prestur í 5 ár og er einnig Glæpasögurithöfundur.

Mar 28, 202149 min

Ep 35Þáttur 36, Aron Brink

Við fáum að kynnast Aroni Brink sem er sonur tónlistamannsins Sjonna Brink, en hann lést á heimili sínu í janúar 2011. Aron hefur þurft að læra að lifa með sorginni en eftir andlát föður síns fór hann að þreifa fyrir sér í tónlist og hefur tekið þátt í The Voice Iceland og Söngvakeppni Sjónvarpsins.

Mar 28, 202147 min

Ep 34Þáttur 35, Birgir

Tónlistamaðurinn Birgir, sem heitir fullu nafni Birgir Steinn Stefánsson og er sonur tónlistamannsins Stefáns Hilmarssonar, hefur slegið rækilega í gegn í popp heiminum á undanförnum árum. Hann hefur átt tvö lög í Söngvakeppni Sjónvarpsins og lagið hans Can You Feel It hefur fengið yfir 24 milljónir spilana.

Mar 28, 202150 min

Ep 33Þáttur 34, Sigrún Waage

Már Gunnarsson ræðir við Sigrúnu Waage um ferilinn og lífið. Ung fór hún í virtan leiklistarháskóla og fékk fullt af spennandi verkefnum í framhaldi þess hér á Íslandi. Líf hennar hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum.

Mar 28, 202146 min

Ep 32Þáttur 33, Tómas Welding

Tómas Welding er ungur kvikmyndagerðarmaður og tónlistamaður sem hefur sér það að leiðarljósi að framkvæma allt það sem honum dettur í hug. Tónlistin hans hefur notið nokkurra vinsælda, en vinsælasta lagið hans hefur hlotið yfir 11.000.000 hlustanir

Mar 2, 202151 min

Ep 31Þáttur 32, Ragnheiður Ragnarsdóttir

Í dag er víkingaþáttur hjá Unga Fólkinu. Við fáum í heimsókn leikkonuna og sunddrottninguna Ragnheiði Ragnarsdóttur, en hún fer með aðalhlutverk í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum: Vikings, auk þess að eiga tvenna ólympíuleika að baki.

Feb 22, 202146 min

Ep 30Þáttur 31, Hilmar Snær Örvarsson

Í þætti vikunnar fáum við Hilmar Snæ Örvarsson í heimsókn til að segja okkur sögu sína sem einfættur skíðakappi. Hann hefur verið einfættur síðan hann greindist með krabbamein í lærlegg og þurfti þá að fjarlægja beinið, en hann lætur það svo sannarlega ekki stoppa sig.

Feb 15, 202148 min

Ep 29Þáttur 30, Friðjón Einarsson

Már Gunnarsson ræðir við Friðjón Einarsson, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og formann bæjarráðs, um líf hans, stjórnmál og uppgang Reykjanesbæjar.

Jan 31, 202147 min

Ep 28Þáttur 29, Björk Arnardóttir

Enn og aftur fer Unga Fólkið í hundana. Í þætti vikunnar fáum við aftur til okkar hundaþjálfarann Björk Arnardóttur og ætlum við að þessu sinni að ræða um almenna hundaþjálfun og hvað fólk þarf að gera til þess að byggja upp gott og fallegt samband við hundinn. Ef þú ert að velta fyrir þér hundakaupum eða ert að fá þér hund og vantar upplýsingar um grunnatriði þjálfunar, þá mátt þú ekki missa af þessum þætti!

Jan 23, 202145 min

Ep 27Þáttur 28, Amanda Líf og Natan Dagur

Við fáum í heimsókn Amöndu Líf Fritzdóttur, nútímadansara og ljóðskáld, og í lok þáttar heyrum við stuttlega í Natan Degi sem nýlega fékk fullt hús stiga í norska The Voice.

Jan 15, 202148 min

Ep 26Þáttur 27, Stefan Octavian

Stefan Octavian er fyrsta íslenska klámstjarnan. Hér fáum við að heyra sögu hans og hvernig klámheimurinn virkar.

Jan 9, 202148 min

Ep 25Þáttur 26, Spjallað við hlustendur

Í þættinum er jólastemningin ríkjandi. Már og Iva spila jólalög fyrir hlustendur og spjalla við allskonar fólk um væntanlegt jólahald.

Dec 20, 202044 min

Ep 24Þáttur 24, Matti Matt

Þetta er fyrsti jólaþáttur Unga Fólksins. Már Gunnarsson ræðir við stórsöngvarann Matta Matt, en hann hefur á sínum ferli ferðast um víðan völl og komið fram allstaðar frá sveitaböllum í að standa á sviði sem framlag Íslands í Eurovision. Að sjálfsögðu er spilað jólalag í lokin.

Dec 8, 202048 min

Ep 23Þáttur 23, Sara Sigmundsdóttir

Már Gunnarsson ræðir við Söru Sigmundsdóttur sem er ein bjartasta crossfit stjarna í heimi. Hún er með 1,8 miljónir fylgenda á instagram og hefur svo sannarlega þurft að klífa tinda til að ná þeim árangri sem hún hefur náð í dag.

Nov 29, 202049 min

Ep 22Þáttur 22, Guðjón Elí

Már Gunnarsson ræðir við Guðjón Elí sem er 18 ára jákvæður fótbolltastrákur úr Sandgerði með beinkrabbamein! Það er ekki auðvellt að þurfa að hætta að æfa og stunda það sem maður elskar að gera, breyta um lífsstíl til þess að ná bata, en það er ekkert annað sem kemur til greina en að sigrast á veikindunum.

Nov 22, 202048 min

Ep 21Þáttur 21, GDRN

Már Gunnarsson ræðir við tónlistarkonuna GDRN um ferilinn, tónlist og grímunotkun. Þau spila lag í lokin.

Nov 14, 202037 min

Ep 20Þáttur 20, Már Gunnarsson

Í þættinum er sýnt hvernig þáttastjórnandi með batteríslausan síma og ekkert hleðslutæki bjargar sér þegar viðmælandinn klikkar á að mæta. Már Gunnarsson ræðir við sjálfann sig um tónlist og lífið sjálft, spilar lög í beinni og rifjar upp brot af því besta úr fyrri þáttum.

Nov 6, 202046 min

Ep 19Þáttur 19, Geir Ólafsson

Már Gunnarsson ræðir við Geir Ólafsson um lífið, ferilinn og hvernig maður tekst á við áskoranir. Það er svo sannarlega spilað lag í lokin.

Oct 29, 202051 min

Ep 18Þáttur 18, Björk Arnardóttir

Hefur þú séð blindan einstakling ganga með leiðsöguhund? Og hefur þú spurt þig hvernig svona samstarf á milli manns og hunds gengur fyrir sig? Þá er þetta þáttur fyrir þig. Í þættinum er rætt við Björk Arnardóttur, hundaþjálfara, um leiðsöguhunda, hvernig þeir nýtast fólki í daglegu lífi og hvernig þeir eru þjálfaðir.

Oct 25, 202054 min

Ep 17Þáttur 17, Magnús Þór Hafsteinsson

Í þættinum er fjallað um flugslysið árið 1970 þegar vél Flugfélags Íslands fórst í Færeyjum. Viðmælandi er Magnús Þór Hafsteinsson sem er að gefa út bók um atburðinn. Í lok þáttar heyrum við í sigurvegurum söngkeppni framhaldsskólanna 2020.

Oct 3, 202047 min

Ep 16Þáttur 16, Engill Bjartur

Menn sækja sér innblástur við listræna sköpun með ólíkum hætti. Við heyrum í Engli Bjarti sem lagði af stað í langferð um Evrópu til að safna hugmyndum í nýjustu ljóðabókina sína. Meðal annars var hluti af þeirri innblásturssöfnun að skella sér á hóruhús. Við heyrum einnig í ungri og upprennandi tólistarkonu í hveragerði.

Sep 28, 202048 min

Ep 15Þáttur 15, Sigga Kling

Már Gunnarsson ræðir við spákonuna Siggu Kling. Opinskátt viðtal þar sem hlutirnir eru látnir flakka. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Sep 18, 202048 min

Ep 14Þáttur 14, Sveinbjörn Darri

Már Gunnarsson ræðir við Sveinbjörn Darra sem er 14 ára og einn yngsti svifflugmaður í söguni. Í þættinum er einnig rætt við flugstjórann Einar Dagbjartsson um flug og stöðu flugs í dag.

Sep 11, 202056 min

Ep 13Þáttur 13, Sigríður Thorlacius

Már Gunnarsson ræðir við söngkonuna Sigríði Thorlacius um ferilinn og hvort það sé eitthvað til í þeim orðrómi uma að hún og Sigurður Guðmundsson séu kærustupar. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Sep 3, 202056 min

Ep 12Þáttur 12, Auðunn Sölvi

Már Gunnarsson ræðir við Auðunn Sölva, níu ára leikara og rithöfund sem þrátt fyrir ungan aldur ber af á sínum sviðum. Í þessum þætti er mikið um hlátur og að sjálfsögðu er tekið lag í lokin. Í þættinum er líka leynigestur.

Aug 25, 202040 min

Ep 11Þáttur 11, Ívar Daníels

Már Gunnarsson ræðir við ívar Daníels stórsöngvara um lífið, erfið áföll sem á daga hans hafa drifið og hversu mikilvægt það er að bregðast rétt við á ögurstundu. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Aug 21, 202058 min

Ep 10Þáttur 10, Ragga Gröndal

Már Gunnarsson ræðir við söngkonuna Ragnheiði Gröndal um ferilinn, lífið, stefnumótasíður og margt fleira. Í þessum þætti eru tvö lög spiluð í beinni.

Aug 14, 202055 min

Ep 9Þáttur 9, Sanna Magdalena

Sanna Magdalena er yngsti borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar í sögunni. Á uppvaxtarárum hennar glímdi hún við gríðarlega fátækt þar sem hver króna skipti máli. Draumur Sönnu sem stjórnmálamanns er að uppræta fátækt. Að sjálfsögðu er tekið lag í lokin.

Aug 6, 202056 min

Ep 8Þáttur 8, Páll Óskar

Meðalaldur þáttar dagsins er 35 ár. Már Gunnarsson ræðir við Pál Óskar um áhrif corona veirunnar á tónlistarlífið, hrillingsmyndir og margt fleira. Að sjálfsögðu er tekið lag í lokin.

Jul 30, 202051 min

Ep 7Þáttur 7, Séra Pétur

Már Gunnarsson ræðir við séra Pétur sem að eigin sögn er klikk-klerkur um trúmál og hve miklu skiptir máli að vera öðruvísi og njóta sín í lífinu!

Jul 23, 202053 min

Ep 6Þáttur 6, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Már Gunnarsson ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um Covid19 faraldurinn, skimun ferðamanna og starf dómsmálaráðherra. Að sjálfsögðu er tekið lag i lokin!

Jul 16, 202052 min

Ep 5Þáttur 5, Arna Sigríður Albertsdóttir

Már Gunnarsson ræðir við Örnu Sigríði Albertsdóttur, þrítuga landsliðskonu í handahjólreiðum, um hvernig það er að takast á við lífið eftir að hafa lent í alvarlegu slysi sem breytti öllu. Arna er einstök kona með frábær viðhorf og fallegt hjartalag sem allir ættu að taka sér til fyrirmyndar. Að sjálfsögðu er síðan tekið lag í lokin.

Jul 9, 202056 min

Ep 4Þáttur 4, Ari Ólafsson

Már Gunnarsson ræðir við sigurvegara Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2018, Ara Ólafsson, um tónlist, lífið og að sjálfsögðu Eurovision. Þeir félagar taka lagið í lokin.

Jul 3, 202051 min

Ep 3Þáttur 3, Brynjar Karl

Már Gunnarsson ræðir við Brynjar Karl, 16 ára strák með einhverfu, um mikilvægi þess að rækta hæfileikana í sjálfum sér en Brynjar fann sinn hæfileika þegar hann var 10 ára gamall þegar hann byggði eftirlíkingu af Titanic úr 60.000 lego-kubbum. Einnig kemur söngvarinn Kid Isak í heimsókn sem einnig lætur sína einhverfu ekki aftra sér í lífinu, og að sjálfsögðu er lag í beinni í lokin.

Jul 3, 202051 min

Ep 2Þáttur 2, Þorri Þórarinsson

Már Gunnarsson ræðir við Þorra Þórarinsson, nýstúdent, sem útskrifaðist úr framhaldsskóla með 10 í meðaleinkunn. Einnig kemur í heimsókn söngkonan Iva, og taka þau Már lagið í lokin.

Jul 3, 202051 min

Ep 1Þáttur 1, Engill Bjartur

Már Gunnarsson ræðir við 22 ára ljóðskáld, Engil Bjart Einisson, um ljóðamarkað nútímans, að muna eitt þúsund aukastafi af Pí, ástarmál og margt fleira. Einnig kemur söngkonan Ísold og syngur lag í lok þáttar.

Jan 1, 197053 min