
#123 Sölvi Blöndal - forsprakki Quarashi og hagfræðingur ársins
The Snorri Björns Podcast Show
Audio is streamed directly from the publisher (traffic.libsyn.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
"Ég hafði ekki áhuga á að vera í þessu lífi eina sekúndu í viðbót. Ég ætlaði aldrei að snerta kjuðana aftur og það var svo góð tilfinning. Það er besta tilfinning sem ég hef fengið að hætta í Quarashi."
Sölvi Blöndal einsetti sér að verða besti trommari í heimi og nýstofnuð hljómsveit hans, Quarashi, var fínasti vettvangur til þess. Quarashi sló í gegn á heimsvísu, komu Jinx á Billborad listann, hituðu upp fyrir Eminiem og Prodigy, túruðu fyrir ofuraðdáendur í Japan en hljómsveitarmeðlimir gátu ekki meir.
Með sína maníu-nálgun á lífið settist Sölvi, þá 30 ára, á skólabekk með íslenskum aðdáendum sínum. Eftir útskrift er hann ráðinn inn í Kaupþing af Ásgeiri Jónssyni, þaðan yfir til Gamma og árið 2017 er hann kjörinn hagfræðingur ársins.