PLAY PODCASTS
Stjörnuspeki – Orkugreining

Stjörnuspeki – Orkugreining

106 episodes — Page 3 of 3

Ep 605: KENNSLA: Yfir og undirsnúningur merkjanna 12

Hæfileikar og veikleikar eru endar á sömu spýtunni. Það hljómar kannski einkennilega – svona við fyrstu sýn – að ekki er hægt að hafa hæfileika án samsvarandi veikleika. Stífni er neikvæða hliðin á aga. Græðgi er neikvæða hliðina á stórhug. Að vera utan við sig, athyglisbrotinn, er neikvæða hliðin á ímyndunarafli. Meðvirkni er neikvæða hliðin á kærleika. Ofverndun neikvæða hliðin á umhyggju, og svo framvegis. Sem þýðir um leið að ef við búum yfir ákveðnum veikleikum þá er málið að spyrja: Hvar er hæfileikahliðin? Í stað þess að berjast við og reyna að sigrast á veikleikum þá er málið að snúa spýtunni við. Orðað á annan hátt: Veikleikar eru hæfileikar á rangri hillu í lífinu. Þegar uppræta á veikleika þá er málið að finna réttu hilluna fyrir viðkomandi eiginleika. Í þættinum ræðum við um stjörnumerkin tólf útfrá þessum nótum og er hér listi yfir hvenær hvert merki er rætt: Inngangur 00:00 Sporðdreki 03:10 Krabbi 10:40 Meyja 16:00 Naut 23:25 Tvíburi 26:20 Steingeit 30:10 Hrútur 37:20 ­Ljónið 43:00 Vogin 49:29 Vatnsberi 54:08 Fiskur 01:02:50 Bogmaður 01:15:10

Sep 25, 20231h 26m

Ep 504: KENNSLA: Orkufræði

Í þætti vikunnar ræðum við vikudagana og hvernig við notum tímatalið. Svo förum við í orkufræði sem er undirstaða alls lífs. Inngangur 00:00 Vikudagarnir 03:06 Orkufræði 16:23 Spjall 54:53

Sep 18, 20231h 0m

Ep 403: KENNSLA: Frumkvæð - Stöðug - Breytileg / Hver maður margir menn

Í þætti vikunnar förum við yfir hvað það er þegar merkin eru Frumkvæð - Stöðug og Breytileg. Einnig ræðum við hvað hugtakið "Hver maður margir menn" þýðir ásamt léttu spjalli um allt milli himins og jarðar. Hér er hægt að sjá hvenær hvert efni byrjar í þættinum. Inngangur 00:00 Frumkvæð - Stöðug - Breytileg 13:14 Hver maður margir menn 28:21 Spjall 50:45

Sep 11, 202352 min

Ep 302: KENNSLA: Frumefnin fjögur: Eldur - Jörð - Loft - Vatn

Inngangur 00:00 Eldur 01:34 Jörð 22:13 Loft 37:41 Vatn 46:00 Lokaspjall 01:09:33

Sep 4, 20231h 11m

Ep 201: KENNSLA: 12 grunnmerki stjörnuspekinnar

Í þessum fyrsta þætti förum við yfir öll 12 grunnmerki stjörnuspekinnar. Þið ykkar sem viljið læra meira um stjörnuspeki ættuð að hlusta á öll merkin til að fá innsýn í hvernig þau eru í grunninn. Fyrir þá sem vilja svo stökkva beint í sitt merki þá eru hér tímapunktar fyrir þau hér. Inngangur 0:00 – 4:49 Hrúturinn 4:49 – 10.28 Nautið 10:28 – 16:03 Tvíburinn 16:03 – 25:07 Krabbi 25:07 – 30:01 Ljónið 30:01 – 38:41 Meyjan 38.41 – 47:47 Vogin 47:47 – 53:54 Sporðdreki 53:54 – 1:01:53 Bogmaður 01:01:53 – 01:10:14 Steingeit 01:10:14 – 01:20:35 Vatnsberi 01:20:35 – 01:25:45 Fiskur 01:25:45 – 01:32:38 Lokaorð 01:32:38 – 01:35:02

Aug 28, 20231h 34m

Ep 100: KENNSLA: Hvað er Stjörnuspeki og hver er tilgangurinn ?

Aug 22, 202341 min