
Boðunarkirkjan - Magnea Sturludóttir & Elín Ósk Óskarsdóttir
Síðdegisútvarpið · Útvarp Saga
Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Boðunarkirkjan - Upprisu Tónleikar: Pétur Gunnlaugsson ræðir við þær Magneu Sturludóttur prest í Boðunarkirkjunni og Elínu Ósk Óskarsdóttur söngkonu og söngkennara ásamt því að vera listrænn stjórnandi og skipuleggjandi í Boðunarkirkjunni.
Rætt verður um upprisu tónleika sem verða haldnir næsta sunnudag í Boðunarkirkjunni í Hafnarfirðir kl. 15 en næsti sunnudagur er einmitt Pálmasunnudagur.
Það verður mikið um gleði og tónlist en hljómsveit Boðunarkirkjunnar spilar en henni stjórnar Kjartan Ólafsson og þar verður Dan Cassidy fiðluleikari .
Á tónleikunum koma fram söngkonurnar Elín Ósk Óskarsdóttir, Elsa Waage kontra alt - söngkona, Maríanna Másdóttir sópran, Björg Birgisdóttir sópran og Anna Sigga Helgadóttir alt söngkona. Sannkallað einvala lið. Frítt inn og léttar veitingar. -- 10. apr. 2025