
Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi
Rauða borðið 24. febrúar: Langtíma-covid, femínismi, Bændablaðið, brennivín og sósíalismi Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari ríður á vaðið í dagskránni með áhrifaríku viðtali við Björn Þorláks. Gunnar segir þúsundir langveikra Íslendinga hafa fallið milli skips og bryggju hjá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar er sjálfur í hópi þeirra sem þjást af ,,longcovid." Hann lýsir persónulegum áskorunum sem felast í raun í því að læra að lifa upp á nýtt. Þau Guðrún Hulda Pálsdóttir, fráfarandi ritstjóri Bændablaðsins, og Skúli Bragi Geirdal hjá Fjölmiðlanefnd ræða stöðu blaðamennsku hér á landi. Bændablaðinu hefur í fyrsta skipti í Íslandssögunni tekist að verða meira lesið en Mogginn á höfuðborgarsvæðinu. Mahdya Malik, Najlaa Attaallah og Zara Amad frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna tala við Maríu Lilju um það sem kallast: Minn hijab mitt val! Þær ræða kvenréttindi og óréttlætið í hvítum femínisma sem og valdeflingu sem felst í því að vera með hijab. Við segjum einnig fréttir frá ríkjum sósíalismans. Eyjólfur Eyvindsson og Kristbjörg Eva Andersen Ramos fara yfir það sem helst er að eiga sér stað í Suður Ameríku. Og við ljúkum þætti kvöldsins með gagnrýninni umræðu um áfengismál. Á sama tíma og WHO hrósar Íslendingum fyrir aðhaldsstefnu hyllir undir breytingar sem gætu gert illt verra. Árni Guðmundsson forvarnarráðgjafi ræðir áfengismál og lýðheilsu.
Audio is streamed directly from the publisher (cdn.simplecast.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.