
Miðnætti í Kænugarði
Gunnar Smári Egilsson, Tjörvi Schiöth · Samstöðin
Show overview
Miðnætti í Kænugarði has published 5 episodes, alongside 1 trailer or bonus episode during 2023. That works out to roughly 6 hours of audio in total. Releases follow a weekly cadence.
Episodes typically run over ninety minutes — most land between 44 min and 1h 37m — though episode length varies meaningfully from one episode to the next. It is catalogued as a IS-language News show.
The catalogue appears to be on hiatus or wound down — the most recent episode landed 2.8 years ago, with no new episodes in over a year. Published by Samstöðin.
From the publisher
Miðnætti i Kænugarði er vikulegur þáttur á Samstöðinni þar sem Tjörvi Schiöth fer yfir stöðuna í stríðinu, rætt er við fólk um ýmsa anga stríðsins og fjallað um einstaka þætti þessa hræðilega stríðs.
Latest Episodes

Ep 4Miðnætti í Kænugarði - Leiðtogafundur Nató
Við fjöllum um leiðtogafund Nató, aukna notkun klasasprengja og um samskipti ríkjanna hvað varðar mögulega inngöngu Úkraínu í Nató, sem þeim hefur verið lofað óbeint í fjölda ára. Karl Héðinn Kristjánsson stjórnaði þættinum í þetta skipti og Tjörvi Schiöth kom og sagði okkur frá atburðum síðustu daga.

Ep 3Miðnætti í Kænugarði: Uppreisn, valdarán og valdakerfi
Þriðjudagurinn 27. júní Tjörvi Schiöth fer stöðuna í stríðinu á vígvellinum og fer yfir fréttir af uppreisn Prigósjíns og Wagnerliða, kenningar um hana og túlkanir um hvaða áhrif þessir atburðir höfðu á stöðu Pútíns. Við ræðum síðan við Guðmund Ólafsson hagfræðing um völd Pútíns, hverjir eru í innsta hringnum og hvert hann sækir völd sín.

Hver er staðan í Rússlandi og í stríðinu?
bonusLaugardagurinn 24. júní Miðnætti í Kænugarði: Hver er staðan í Rússlandi og í stríðinu? Vegna uppreisnar Wagnerliða undir stjórn Yevgeny Prigozhin sendum við út aukaþátt af Miðnætti í Kænugarði. Gestur þáttarins er Albert Jónsson öryggismálarráðgjafi og fyrrum sendiherra í Washington og Moskvu. Hann spáir í spilin. Eru líkur á valdaskiptum í Rússlandi? Stefnubreytingu? Hvert þróast stríðið á vígvellinum og í heimsmálunum?

Ep 2Friður, Kína og gagnsókn
Miðvikudagurinn 21. júní Miðnætti í Kænugarði: Friður, Kína og gagnsókn Við förum yfir stöðuna á vígvellinum og hinni pólitísku baráttu. Og ræðum breytta stöðu Kína í heiminum við Geir Sigurðsson prófessor og Kínafræðing. Og líka breytta áherslu Kínverska kommúnistaflokksins. Tjörvi Schiöth fer síðan yfir friðarviðræður sem leiðtogar Afríkuríkja vilja koma á, en ekki síður tilraunir í upphafi stríðsins til að stilla til friðar og hvers vegna þær tilraunir runnu út í sandinn.

Ep 1Miðnætti í Kænugarði - 12.06.23
Gestur þáttarins er Hilmar Þór Hilmarsson prófessor sem ræðir lokun sendiráðsins í Moskvu og stefnu íslenskra stjórnvalda en þó mest um efnahagslega stöðu Úkraínu og getu landsins til að rétta sig við