
Völundarhús utanríksmála Íslands – 1. þáttur: Er utanríkisstefna Íslands ómarkviss?
Nýir þættir hefja nú göngu sína á hlaðvarpi Kjar…
Hlaðvarp Heimildarinnar · Heimildin
August 31, 20211h 12m
Audio is streamed directly from the publisher (feeds.soundcloud.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Nýir þættir hefja nú göngu sína á hlaðvarpi Kjarnans um utanríkismál. Markmiðið er að miðla og ræða niðurstöður rannsókna um utanríkistefnu Íslands. Ætlunin er að leiða hlustendur út úr völundarhúsi umræðunnar um utanríkisstefnu Íslands inn á beina og breiða braut skýrrar umræðu um utanríkismál.
Í þessum þáttum verða rannsóknir Baldur Þórhallsson prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands til umræðu. Baldur hefur unnið að rannsóknum í stjórnmálafræði í hart nær þrjá áratugi og sérhæft sig í rannsóknum á stöðu smáríki í Evrópu og utanríkisstefnu Íslands. En til smáríkja teljast til dæmis öll Norðurlöndin og þá eru þau borin saman við stór ríki eins og Þýskland og Bretland.
Fyrsti þátturinn fjallar um hvaða aðferðum lítil ríki beita til að verja hagsmuni sína og hafa áhrif í alþjóðasamfélaginu en Baldur ræðir niðurstöður rannsókna sinna við Karl Blöndal aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins og Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Þættirnir eru hluti af samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Rannsóknaseturs um smáríki við háskólans og hlaðvarp Kjarnans og liður í því að koma rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands á framfæri utan akademíunnar.