
Samtal við samfélagið – Mismunandi réttarstaða þolenda í kynferðisbrotum á Norðurlöndum
Ísland eignaðist á dögunum nýjan doktor í félagsf…
Hlaðvarp Heimildarinnar · Heimildin
May 4, 202054m 14s
Audio is streamed directly from the publisher (feeds.soundcloud.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Ísland eignaðist á dögunum nýjan doktor í félagsfræði en þann 24. apríl varði Hildur Fjóla Antonsdóttir doktorsritgerð sína „Decentring Criminal Law: Understandings of Justice by Victim-Survivors of Sexual Violance and its Implications for Different Justice Strategies“ frá Háskólanum í Lundi.
Hildur Fjóla spjallaði við Sigrúnu um námið og rannsóknir hennar og þá sérstaklega hvernig réttarstaða þolenda er mismunandi á milli Svíþjóðar og Finnlands annars vegar og Íslands, Noregs og Danmerkur hins vegar. Þar má nefna að hér á Íslandi eru þolendur vitni í máli sínu en ekki aðili eins og í Svíþjóð og Finnlandi – sem þýðir að réttindi þeirra eru minni, upplýsingagjöf ábótavant og aðgangur að bótarétti takmarkaðri.
Ásamt því að ræða um þetta á fræðilegu nótunum spjalla þær um hvað hefur verið gert á Íslandi til að mynda varðandi skýrslu sem Hildur Fjóla vann að beiðni stýrihóps forsætirsráðuneytisins um heildstæðar úrbætur í þessum málaflokki.