
Í austurvegi – Kínversk læknislist 中医
Í þættinum er fjallað um kínverska læknislist, og…
Hlaðvarp Heimildarinnar · Heimildin
December 8, 202230m 15s
Audio is streamed directly from the publisher (feeds.soundcloud.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Í þættinum er fjallað um kínverska læknislist, og hvers vegna hún er að ýmsu leyti jafn hátt skrifuð og hin vestrænu læknavísindi í Kína. Á kínverskum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum finnast tvenns konar lyfjageymslur, bæði fyrir vestræn lyf og kínversk. Þar ríkir ekki sama skipting og við eigum að venjast í hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar. Kínversku jurtalækningarnar, taiji-æfingar, nuddmeðferðir og nálastunga hafa sinn sess sem annar af tveimur helstu möguleikum fyrir meðferðir á hvers kyns sjúkleika.
Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.