
Í austurvegi - Hanagól og hundsþjófur
Málsháttur dagsins á sér göfugar rætur þar sem up…
Hlaðvarp Heimildarinnar · Heimildin
October 21, 202212m 37s
Audio is streamed directly from the publisher (feeds.soundcloud.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Málsháttur dagsins á sér göfugar rætur þar sem uppruni hans er í sjálfu Shǐjì (史记), eða Skrám stórsagnfræðingsins, magnum opus sagnaritarans Sīmǎ Qiān.
Sagan er frá Tímabili hinna stríðandi ríkja, sem varði á síðari helmingi Austur-Zhou-veldisins. Þetta var blóðugt tímabil og í Gulafljótsdalnum finnast enn stríðsminjar þess í jörðu. Hún gerist á tímum konungsins Zhāoxiāng af Qín, á 3. öld fyrir Krist. Hann var langafi Qín Shǐhuáng, fyrsta Kínakeisara, og var með stórtæk plön rétt eins og barnabarn hans síðar meir.
Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.