
Heimavöllurinn: Leið Karólínu og Alexöndru frá Hafnarfirði til Þýskalands
Fotbolti.net · [email protected]
July 9, 2021
Audio is streamed directly from the publisher (utvarp.fotbolti.net) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru aðeins tvítugar en eru báðar komnar í stórlið í þýsku úrvalsdeildinni.
Þær ólust upp í FH og Haukum og voru báðar komnar snemma í stór hlutverk í sínum liðum. Árið 2018 tóku þær báðar stökkið yfir í Breiðablik, slógu í gegn og æfa núna á hverjum degi með þýskum landsliðsvélum í einni bestu deild heims.
Við fórum meðal annars yfir fyrstu árin í meistaraflokki með FH og Haukum, yngri landsliðin, markmiðin, félagaskiptin yfir í Breiðablik og fyrsta árið í atvinnumennsku.