
Draugasögur
204 episodes — Page 5 of 5

Ep 4545. Þáttur - Snedeker Fjölskyldan Partur 1
ETugi þúsundir heimila um allan heim eru talin vera reimd og að inní þeim hefur fólk upplifað óeðlilega hluti, séð eitthvað sem ekki er, heyrt raddir þegar húsið er tómt, eða fundið fyrir ónota tilfinningu þó að ekkert sé að.En svo eru það hús sem andar hreinlega eigna sér. Við höfum fjallað um þannig mál í fyrri sögum, þar sem andarnir taka yfir húsið og reyna allt sem þeir geta til þess að hrella fjölskyldur burt. Sagan okkar í dag er einmitt um þannig hús og fjölskyldu sem upplifði martröð í marga mánuði strax eftir að þau fluttu inn….Okkur langar til þess að kynna ykkur fyrir Snedeker fjölskyldunni og sögunni þeirra sem er oft kölluð The Haunting in ConnecticutTakk fyrir að hlusta á Draugasögu vikunnar 👻 Ef þú vilt hlusta á fleiri Draugasögur þá bjóðum við uppá þrjár áskriftarleiðir inná Patreon!Skoðaðu myndir og annað efni sem fylgir þættinum inná Draugasögur.com

Ep 4444. Þáttur - Monte Christo Setrið
Í þessum þætti ferðumst við þvert hnöttinn og heimsækjum eitt reimdasta húsið í Ástralíu.Öll hús geyma einhvers konar leyndarmál og ef hús gætu talað þá myndi Monte Christo hafa nóg að segja. En málið er að veggirnir inn í setrinu ... öskra og gráta - og það bókstaflega! Leyndarmálin sem leynast þar verða ekki þögguð niður og hefur því vel þekkst á meðal heimamanna að vera sennilega það óhuggulegasta í landinu og hefur verið það í áratugi...Verið velkomin í Monte Christo Setrið

Ep 4343. Þáttur - Bílferð um Draugaslóðir
ESpennið beltin því þið eruð á leið í bílferð með okkur um heilt bæjarfélag sem er stútfullt af draugum! Nánast á hverju horni.Við erum stödd í afskekktum bæ sem nefndur er Caryville í Wisconsin í Bandaríkjunum...Hafðu rúðurnar samt uppi, þú vilt ekki að einhver fylgi þér heim ...?...Myndir og efni sem fylgir þættinum er á Draugasögur.com Enn fleiri þættir, sönnunargöng, myndbönd, klippur, viðtöl, spjallþættir ofl. er aðgengilegt á: Patreon.com/Draugasögur

Ep 4242. Þáttur - Cripple Creek
EÍ þessum þætti ætlum við að segja ykkur tvær draugasögur sem bæði gerast í hinum alræmda draugabæ Cripple Creek í Colorado en þessi litli sveitabær margfaldaðist bæði að stærð og í íbúafjölda á örfáum árum eftir að ein arðbærasta gullnáma heims fannst í bænum...Verið velkomin í Cripple Creek*Skoðaðu myndirnar og annað efni sem fylgir þættinum á draugasögur.comTakk fyrir að hlusta á Draugasögu vikunnar 👻 Ef þú vilt hlusta á fleiri Draugasögur þá bjóðum við uppá þrjár áskriftarleiðir inná Patreon! Ef að þú hlustaðir, ertu þá kannski til í að styrkja Mikael Darra? Þessi þáttur var gerður fyrir hann 🙏🏽Svo viljum við minna á styrktarreikninginn hans Mikaels Darra en þessi þáttur var búinn til fyrir hann 🤍 Svo ef þú hlustaðir og hafðir gaman að hjálpaðu okkur að hjálpa Mikael Darra í hetjulegri barráttu við illkynja krabbamein 🤍Mikael Darri veikist í kringum 8 mánaðar aldur og greinist síðan í framhaldi með alvarlegt AML hvítblæði ásamt æxli við heila, mænu og andlit rètt fyrir 1 árs afmælið sitt. Nú á meðan Líf og Magnús foreldrar þeirra standa í þessu krefjandi verkefni og miklu óvissu með framtíðina hefur verið stofnaðurDraugasögur Podcast mun halda áfram að styrkja þau næstu mánuði með peningaframlögum og við hvetjum ALLA HLUSTENDUR að gera það sama…. Margt smátt gerir eitt stórt 🙏🏽Reikningur er: 536-26-8389 kt. 130384-8389Hjálpum Mikael Darra og fjölskyldu hans í þessu erfiða verkefni 🤍