
Audio is streamed directly from the publisher (mcdn.podbean.com) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Um kvöldið 5. nóvember árið 1975, í Arizona fylki í Bandaríkjunum, var skógarhöggsmaðurinn Travis Walton ásamt vinnufélögum sínum á leið heim eftir langan vinnudag. Þeir voru nokkrir saman í bifreið, spjölluðu og göntuðust við hvorn annan. Skyndilega sló þögn á mannskapinn. Í gegnum trjágróðurinn sáu þeir einkennilega birtu. Innan skamms komu þeir auga á afar stóran, disklaga málmhlut sem gaf frá sér þessa sérkennilegu birtu. Hluturinn sveif í lausu lofti nokkra metra frá jörðu. Forvitnin varð öllu yfirsterkari og Travis fór út úr bílnum til að athuga þetta betur. Þá tók við atburðarás sem átti eftir að gerbreyta lífi hans.
Það eru Borg Brugghús/Bríó sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤
Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum
Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Það eru Borg Brugghús/Bríó sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤
Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum
Umræðuhópur Drauganna á Facebook