PLAY PODCASTS
Birtingarmyndir

Birtingarmyndir

Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir

29 episodesIS

Show overview

Birtingarmyndir launched in 2021 and has put out 29 episodes, alongside 1 trailer or bonus episode in the time since. That works out to roughly 30 hours of audio in total. Releases follow a fortnightly cadence.

Episodes typically run an hour to ninety minutes — most land between 51 min and 1h 12m — though episode length varies meaningfully from one episode to the next. None of the episodes are flagged explicit by the publisher. It is catalogued as a IS-language Society & Culture show.

The catalogue appears to be on hiatus or wound down — the most recent episode landed 4.6 years ago, with no new episodes in over a year. The busiest year was 2021, with 27 episodes published. Published by Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir.

Episodes
29
Running
2021–2022 · 1y
Median length
1h 3m
Cadence
Fortnightly

From the publisher

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.

Latest Episodes

View all 29 episodes

Ep 28BMN: (500) Days of Summer

Velkomin í samúðarkortadeildina. Bergrún, Díana Sjöfn og Sjöfn dýfa sér í rómantísku gamanmyndina (500) Days of Summer og skoða birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku, sérvitra álfadísa, allt of gáfaðra barna í kvikmyndum og sjálfrar ástarinnar. Sjöfn nær að fara yfir söguþráð myndarinnar á innan við hálftíma, persónulegt met, Díana þarf að sinna skyldum sem móðir og Bergrún ældi einu sinni á gólfið heima hjá sér.

Feb 7, 202250 min

Ep 27Tilkynning

Það er komið aftur! Podcastið sem allir hafa beðið eftir! Eða hvað? Sökum tæknilegra örðugleika í ársbyrjun kemur næsti þáttur því miður ekki fyrr en í næstu viku en örvæntið ekki, hlustið á vafasöm hljóðgæði og vægt fliss til að hita upp fyrir komandi þátt.

Jan 28, 20224 min

Ep 26Manic Pixie Dream Girl

Ert þú sérvitur álfadís? Eða hefur einhver annar gefið þér það hlutverk? Í þætti dagsins ræðum við Manic Pixie Dream Girl, staðalmyndina sem tröllreið indie-kvikmyndaheiminum frá um 2005 til 2015. Hvers vegna er staðalmyndin skaðleg og hvernig hefur hún þróast? Hefur hún haldið velli eða má finna hana falda í öðrum staðalmyndum kvenna? Og hvað með Manic Pixie Dream Boy? Hvað er að frétta af honum?Greinar:https://www.theatlantic.com/sexes/archive/2013/07/the-real-world-consequences-of-the-manic-pixie-dream-girl-clich-233/277645/https://www.bitchmedia.org/article/harry-styles-soft-boy-aesthetic-manic-pixie-dream-boyhttps://www.salon.com/2014/07/15/imsorryforcoiningthephrasemanicpixiedream_girl/https://www.glamour.com/story/the-manic-pixie-dream-girl-isnt-dead-shes-just-evolved

Nov 4, 202149 min

Ep 25BMN: Candyman

Candyman. Candyman. Candyman. Það er Spooky Season í öllu sínu veldi og í tilefni Hrekkjavökunnar horfðum við á hryllingsmyndina Candyman (2021) í leikstjórn Nia DaCosta. Við veltum fyrir okkur hryllingsminnum, menningarátökum, miðstéttarvæðingu og kynþáttafordómum í myndinni sem og samfélaginu og spyrjum hinar eilífu spurningar: Af hverju er vondi karlinn alltaf fatlaður?Kíkið á:https://chicagoreader.com/news-politics/they-came-in-through-the-bathroom-mirror/https://www.horrorbound.net/spooky-reads/the-forbidden-clive-barker-lhttps://en.wikipedia.org/wiki/Cabrini–Green_Homes https://myfavoritemurder.com/266-rave-after-rave/

Oct 21, 20211h 23m

Ep 24Bara vinir

Verður þú að ríða vinum þínum? Svarið er oft á tíðum já, en birtingarmyndir sambanda gagnkynhneigðra kvenna og karla gefa í skyn að eingöngu vinátta sé óraunhæfur möguleiki. Við kíkjum á þrjár myndir með þemu vináttu og ásta, My Best Friend's Wedding, When Harry met Sally og Just Friends. Díana viðurkennir að hafa orðið skotin í vini, Sjöfn viðurkennir alvarlegan sleiksjúkdóm og Bergrún dansar á línunni. Endilega hlustið, vingast Við okkur og byrjið svo með okkurAth, á mín. 46.40 ætlaði Bergrún að segja "ekki einkynhneigt" en tungan í henni rann til. Afsakið.

Oct 7, 202153 min

Ep 23Met Gala

Borgaðir þú 25.000 dollara til að hlusta á þennan þátt? Ekki? Þá ertu sennilega ekki jafn ríkur og fólkið sem mætti á Met Gala til að sýna sig og sjá aðra. Við ræðum tískuna, ádeiluna, pólitíkina og allt hitt tengt Met Gala 2021, dæmum nokkur outfit og spyrjum alvöru spurninga eins og, hvað er Beyonce gömul, eru Jen og Ben saman í alvöru og er hárið á Jay Z ekta.

Sep 23, 202151 min

Ep 22Madonnan, hóran og lokastelpan

Staðalmyndirnar eru víða og ekki síst í bíómyndum. Við kíkjum á einhliða kvenpersónur í kvikmyndum og einbeitum okkur að þremur erkitýpum til frekari greiningar. Við ræðum til dæmis Mean Girls, Grease, Halloween, House of Wax, Alien og auðvitð Vertigo. Svo leikum við auðvitað hinn fræga samkvæmisleik ´Hver myndi deyja fyrst ef þetta væri hryllingsmynd?´

Sep 9, 20211h 5m

Ep 21Vampírur

Færðu þig lúðalegi Drakúla, Edward cullen er mættur! Í þætti dagsins ræðum við vampírur: birtingarmyndir þeirra í gegnum söguna og þróun ímyndar þeirra, frá fornkína, yfir til austur og norður Evrópu og alla leið til Forks, Washington. Þess má til gamans geta að þetta er fyrsti þátturinn sem við tókum upp, snemma 2021. Ji hvað við vorum ungar. Haltu fyrir hálsinn, athugaðu hvort þú eigir ekki örugglega hrísgrjón og skelltu þér i hlustun

Aug 26, 20211h 26m

Ep 20Framakonan LIVE

Áður en sumarfríið skall á okkur vorum við Live á Instagram. Nú snúum við aftur úr fríi deilum með ykkur þessari live upptöku þar sem við fjöllum um birtingarmyndir framakonunnar. Við skoðum hina raunverulegu framakonu, framakonuna í kvikmyndum og sögu hinna vinnandi kvenna almennt. Við áhlustun mælum við með að hafa goðsagnakennda valdastöru Meryl Streep í Devil Wears Prada í huga og góða skál af poppkorni við hendina.

Aug 12, 20211h 10m

Ep 19Mörk

Í þætti vikunnar ræðum við mörk þegar kemur að „kynlífssenum“ í kvikmyndum. Margar frægustu senunar eru vægast sagt vafasamar, og ef maður lítur aftur í kvikmyndasöguna má finna margt óþægilegt sem fer yfir mörk. Við kíkjum á 16 Candles, James okkar Bond (sem þarf á mikilli sálfræðihjálp að halda), The Wedding Crashers og fleiri gamlar og „góðar“. Þátturinn kemur með risa TW á allt sem við tölum um, nema í byrjuninni þegar við ræðum gallabuxnatísku, það er nokkuð öruggt.

Jul 8, 20211h 1m

Ep 18Kynlif

Við ræðum kynlíf í dægurmenningu, sérstaklega í bíómyndum og sjónvarpi, í gegn um tíðina. Einnig kíkjum við á Horny Twitter og fáum hjálp graðra tvítverja við að nefna eftirminnilegar kynlífssenur. Mikið er flissað þar sem þáttarstjórnendur virðast ekki alveg nógu þroskaðar til að tækla þetta málefni af yfirvegun. Let's get it on!TW: Nauðgun og kynferðisofbeldi í kvikmyndum

Jul 1, 20211h 12m

Ep 17Sifjaspell II

Við höldum áfram að skoða sifjaspell. Nú snúum við okkur að sögu sifjaspella í dægurmenningu aftur til 16. aldar og veltum auk þess fyrir okkur Human Centipede. Af því að .. oj. Eftir þennan þátt getum við svo sáttar snúið okkur að öðru. Takk fyrir.

Jun 24, 202145 min

Ep 16Sifjaspell I

Sifjaspell eru víðar en við héldum og hafa laumað náskyldum krumlum sínum í ýmsa anga dægurmenningar. Frá Game of Thrones til Hornauga Ásdísar Höllu, yfir í biblíuna og auðvitað í kláminu, bæði rituðu og leiknu, má finna sifjaspell. Við skoðum uppruna þessara vinsælda þeirra, umdeildu kenninguna genahrifningu og flissum svolítið.

Jun 17, 202148 min

Ep 15Strákasveitir

Þátturinn sem tvær af þremur umsjónarkonum poddsins kafna næstum á sælgæti. Og talandi um sælgæti, í þessari viku fjöllum við um strákasveitir. Við skoðum hvað þær eru, hver fann þær upp og hvers vegna þær eru svona vinsælar. Er það uppbygging sveitanna sem sker úr um hver er strákasveit eða eru það aðdáendurnir? Hvers vegna er almennt litið niður á áhugamál unglingsstúlkna og hvers vegna köfnum við á vegan nammi?

Jun 10, 20211h 2m

Ep 14BMN: Promising Young Woman

Kvikmyndaklúbbur Bergrúnar tekur fyrir myndina Promising Young Woman. Við viljum vara við því að myndin fjallar um kynferðisofbeldi og getur umræðan verið triggerandi. Einnig er góð spurning hvers vegna báðar myndirnar sem við höfum tekið fyrir í podcastinu hingað til innihalda Adam Brody, ofbeldi og hefnd. Kannski erum við með þema?Greinar:https://www.vulture.com/2021/02/how-promising-young-womans-soundtrack-came-together.htmlhttps://people.com/movies/carey-mulligan-explains-why-negative-review-stuck-with-her/https://collider.com/promising-young-woman-emerald-fennell-interview-ending-spoilers/https://www.nytimes.com/2021/04/01/podcasts/still-processing-promising-young-women-oscars.htmlhttps://www.latimes.com/entertainment-arts/awards/story/2021-04-12/promising-young-womanhttps://www.thetimes.co.uk/article/promising-young-woman-review-a-masterly-tale-of-vengeance-vxfvxp5g7

Jun 3, 20211h 53m

Ep 13Samfélagsmiðlar: Sjálfið

Marilyn Monroe. Kim Kardashian. Píkan hans Gustave Courbet. Nektarsjálfan, samfélagsmiðlar, valdefling, gægjuhneigð og glápþörf. Við drepum víða niður fæti í þessum þætti sem fjallar um sjálfið á tímum samfélagsmiðla, áhrifavalda og markaðssetninga. Er instagramsjálfsmyndin list, er hún tekin á forsendum viðfangsins, viðheldur hún gömlum fegurðarstöðlum eða er hún tæki til valdeflingar? Við höfum kannski ekki lokasvarið en við höfum heilmargar spurningar. Listakonan sem Sjöfn gat ekki munað nafnið á var Catherine Opie. Mælum með. MA-ritgerð Díönu: https://skemman.is/handle/1946/29959Greinar:https://www.fastcompany.com/28905/brand-called-youhttps://www.ruv.is/frett/2021/04/19/er-nektarsjalfan-listhttps://www.theguardian.com/news/2017/aug/18/neoliberalism-the-idea-that-changed-the-worldhttps://theconversation.com/how-neoliberalism-colonised-feminism-and-what-you-can-do-about-it-94856

May 27, 20211h 2m

Ep 13Fitufordómar

TW. átraskanir.Í þættinum ræðum við birtingarmyndir feitra (kvenna) í dægurmenningu. Það kannast flest ef ekki öll við neikvæðar hugsanir um líkama sinn, oftar en ekki vegna þess að hann er „of mikið“ eða „ekki nógu“. Við ræðum þráhyggju samfélagsins gagnvart þyngd, kerfisbundna mismunun, spjöllum um þekktar persónur sem eru kóðaðar neikvæðar vegna holdafars og og eigin reynslu af megrunarmenningu. Mælum með Samtökum um líkamsvirðingu og að hætta að fylgja bara grönnu fólki á instagram. Ef þig langar að senda okkur hugleiðingu eða athugasemd má hafa samband á instagram @birtingarmyndir eða í emaili [email protected]ðmæli:Þættir:ShrillMy Mad Fat DiaryMyndir:DumplinBrittany Runs a MarathonHlaðvörp:Maintenance PhaseBækur:Hunger, Roxane GayLandwhale, Jes BakerGreinar:https://highline.huffingtonpost.com/articles/en/everything-you-know-about-obesity-is-wrong/https://gay.medium.com/the-body-that-understands-what-fullness-is-f2e40c40cd75

May 20, 20211h 29m

Ep 11Fötlun

Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You, Million Dollar Baby, Hringjarann frá Notre Dame, Shape of Water og A Quiet Place, Peanut Butter Falcon og X-Men og þættina Sex Education, Crip Camp, Master of None og bókina Sitting Pretty sem er einmitt bók mánaðarins í bókaklúbbi Flóru þann 23. maí næstkomandi.TW: Minnumst á kynferðislegt ofbeldi og ableismahttps://www.aruma.com.au/about-us/blog/run-forest-run-disability-stereotypes-in-the-media/

May 13, 20211h 18m

Ep 10BMN: Jennifer's Body

Velkomin í kvikmyndaklúbb Bergrúnar, Bergrún's Movie Night. Við ræðum og greinum hina mögnuðu og misskildu költmynd Jennifer's Body frá árinu 2009. Þú þarft ekki að hafa séð myndina til að njóta spjallsins, en við mælum þó með að kíkja á hana. Dýfðu þér með okkur í heim kvenhaturs, hryllingsmynda og misskildra snillinga.TW: Fyrir alls kyns ofbeldi gegn konumVið vitnum meðal annars í greinarnar:https://cinemedia.media/feminism-jennifers-body/https://www.vox.com/culture/2018/10/31/18037996/jennifers-body-flop-cult-classic-feminist-horrorhttps://www.buzzfeednews.com/article/louispeitzman/jennifers-body-diablo-cody-karyn-kusama-feminist-horror

May 6, 202158 min

Ep 9Lesbíur

Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.

Apr 29, 20211h 6m
Bergrun Andradottir